Hæ krakkar. Takk fyrir síðast! Gleðigangan var ótrúlega skemmtileg þetta árið og þið stóðuð ykkur með eindæmum vel eins og alltaf! Það er í nógu að snúast hjá okkur þessa dagana en vöfflukaffið okkar á Menningarnótt er á laugardaginn næsta. Við ætlum að hafa tyrklandsþema í ár og mótmæla þeim mannréttindabrotum sem hafa átt sér stað þar í landi á sl. misserum. Bæði framkvæmdastjóri og formaður Amnesty International hafa verið fangelsaðir fyrir aðild sína að Amnesty International þar sem þau eru grunuð að ósekju um að „fremja glæpi í nafni hryðjuverkasamtaka". Við munum þurfa að hittast í smá tíma fyrir laugardaginn og gera skreytingar en öllu verður tjaldað til fyrir viðburðinn auk þess sem mæting er kl. 1 á laugardaginn til að undirbúa vöfflumál en við sjáum alfarið um þau. Því liggur beinast við að spyrja: hvaða tími hentar ykkur best fyrir föndur á músastigum og öðru agalega smekklegu



Click here to share poll on specific pages, user profiles or purchase votes!